Guðmundur dýralæknir saumar Hrund.

Það getur alltaf hent að hross slasi sig og Hrund lenti í því að fá smá skurð fyrir aftan bóg. Við fengum Guðmund dýralækni á Hellu til að koma og sauma sárið saman. Hann saumaði það af mikilli nákvæmni og á saumurinn ekki eftir að sjást í framtíðinni. Hrund fær svo frí í nokkrar vikur, áður en hægt verður að byrja að þjálfa hana aftur.

Guðmundur dýralæknir 4 15

Guðmundur saumar Hrund.

Guðmundur dýralæknir 5 15

Verki lokið og lítur vel út.